top of page

Hvernig á að stjórna erfiðu fólki

Er ég kannski vandamálið?

Að leiða fólk innan heilbrigðis- og félagsþjónustu er krefjandi verkefni, jafnvel við bestu aðstæður. Flest starfsfólk leggur sig fram um að sinna störfum sínum vel og sýnir ábyrgð og samstarfsvilja. Hins vegar geta komið upp aðstæður þar sem hegðun einstakra starfsmanna reynir á stjórnendur, hefur neikvæð áhrif á samstarf og getur jafnvel truflað starfsemi teymisins.

 

Færir stjórnendur þekkja mismunandi persónugerðir og hegðunarmynstur og leitast við að skilja hvað liggur að baki hegðun fólks. Þeir nýta þann skilning til að bæta samskipti, efla samstarf og takast á við erfiðar aðstæður.

 

En áður en stjórnendur beina sjónum að hegðun annarra þurfa þeir að vera tilbúnir að skoða eigin framkomu og velta fyrir sér hvort þeir sjálfir eigi þátt í þeim vanda sem hefur skapast. Stjórnendur sem eiga erfitt með að ígrunda eigin hæfni, viðbrögð og hegðun geta átt erfiðara með að takast á við krefjandi samskipti og leiða breytingar innan teymisins.

 

Framkoma stjórnenda hefur áhrif á líðan, starfsanda og frammistöðu starfsfólks og getur þar með haft áhrif á gæði þjónustunnar og umönnun sjúklinga og skjólstæðinga.

 

Því er mikilvægt að stjórnendur þekki eigin styrkleika og veikleika og séu tilbúnir að skoða sinn þátt í samskiptavanda áður en þeir beina sjónum að því sem aðrir þurfa að breyta.

 

Hvernig geturðu metið hvort þú sért hluti af vandanum?

 

Stundum höfum við sjálf grun um að eigin hegðun eða viðbrögð eigi þátt í þeim erfiðleikum sem við glímum við. Við finnum jafnvel að eitthvað þurfi að breytast en eigum erfitt með að viðurkenna það.

 

Heiðarleg sjálfsskoðun getur hjálpað stjórnendum að átta sig á eigin áhrifum og greina hvað þeir geta gert öðruvísi. Slík sjálfsvitund er mikilvægur þáttur tilfinningagreindar og oft fyrsta skrefið í átt að breytingum. Að kenna öðrum stöðugt um það sem miður fer getur hins vegar komið í veg fyrir að stjórnandi sjái eigin þátt í vandanum.

 

Stundum þurfum við að heyra frá öðrum það sem við eigum erfitt með að sjá sjálf. Hæfnin til að hlusta á og taka við endurgjöf er því einn af mikilvægum eiginleikum góðs stjórnanda. Það felur meðal annars í sér að taka eftir:

​

• Hvað starfsfólk segir við þig og hvernig það kemur skilaboðum sínum á framfæri.

• Hvort starfsfólk leitar síður til þín en áður.

• Hvort samskipti hafa minnkað eða orðið stirðari.

• Hvort starfsfólk forðast að ræða við þig um erfið mál.

• Hvort sambærileg gagnrýni kemur fram hjá fleiri en einum starfsmanni.

 

Ef slík hegðun er orðin að viðvarandi mynstri er mikilvægt að taka hana alvarlega og skoða hvað gæti legið að baki.

 

„Ég er ekki í vinnunni til að vera vinsæll.“ Þessi orð heyrast stundum frá stjórnendum og vissulega felst ákveðinn sannleikur í þeim. Stjórnendur þurfa að taka erfiðar ákvarðanir, setja mörk og standa við þær, jafnvel þótt þær falli ekki öllum í geð. En það er munur á því að þurfa ekki að vera vinsæll og að telja sig ekki þurfa að njóta trausts og virðingar starfsfólks.

 

Hugsunin „mér er alveg sama hvort fólki líkar við mig“ getur orðið varasöm ef hún kemur í veg fyrir sjálfsskoðun eða gerir stjórnandann ónæman fyrir áhrifum eigin hegðunar á aðra. Góður stjórnandi þarf ekki að þóknast öllum, en hann þarf að geta hlustað, sýnt virðingu og tekið ábyrgð á eigin framkomu.

 

Endurgjöf úr fleiri en einni átt getur komið frá starfsfólki, samstarfsfólki, næsta yfirmanni eða í handleiðslu og starfsmannasamtölum. Ef yfirmaður þinn bendir á sömu atriði og þú hefur sjálfur velt fyrir þér og þau samræmast jafnframt því sem þú heyrir frá teyminu, eru það mikilvægar vísbendingar um að einhverju þurfi að breyta. Þegar sambærileg skilaboð berast úr fleiri en einni átt er ástæða til að staldra við og skoða eigin hegðun og stjórnunarhætti. Hins vegar er mikilvægt að muna að yfirmenn geta einnig haft rangt fyrir sér. Ef neikvæð endurgjöf kemur eingöngu frá einum aðila en samræmist hvorki eigin reynslu né endurgjöf annarra, getur verið ástæða til að skoða málið í víðara samhengi.

 

Markmiðið er ekki að taka allri gagnrýni sem óumdeilanlegum sannleika heldur að geta metið hana af yfirvegun, án þess að fara strax í vörn. Sjálfsskoðun er ekki merki um veikleika stjórnanda heldur styrkleika. Stjórnandi sem getur viðurkennt eigin mistök, tekið ábyrgð og breytt hegðun sinni er betur í stakk búinn til að byggja upp traust, efla samstarf og takast á við krefjandi samskipti innan teymisins.

bottom of page