top of page

Áhrif fjölskylduerfiðleika á starfsgetu og vinnuumhverfi

Fjölskylduvandamál geta verið allskonar og eru algengari í lífi fólks en við áttum okkur á. Þó þau séu hluti af mannlegri reynslu, geta þau haft veruleg áhrif á daglegt líf þegar þau verða langvinn og óleyst – ekki síst á starfsgetu einstaklinga, bæði andlega og líkamlega.

Þegar álag er mikið heima fyrir dregur það oft úr orku, einbeitingu og afköstum í vinnu. Mistök verða tíðari og yfirsýn minnkar. Fjölskylduerjur, ágreiningur eða langvarandi streita geta valdið kvíða, þunglyndi eða svefntruflunum – allt þættir sem hafa bein áhrif á frammistöðu og samskipti á vinnustað.

Í slíkum aðstæðum er algengt að hugsanir reiki sífellt aftur að vandamálunum heima, sem gerir það erfitt að einbeita sér að verkefnum. Skapsveiflur, viðkvæmni og minnkað þol fyrir álagi verða gjarnan áberandi einkenni. Þegar einstaklingur reynir stöðugt að sinna fjölskylduerfiðleikum og standa sig vel í starfi á sama tíma, skapast viðvarandi streita sem, ef ekkert er að gert, getur leitt til kulnunar jafnvel þótt álagið tengist ekki vinnunni beint.

Kulnun er afleiðing margra þátta, og álag í einkalífi vegur þar þungt. Þegar einstaklingur glímir bæði við erfiðar aðstæður heima, svo sem veikindi, sambandserfiðleika, forsjárdeilur eða mikla ábyrgð á börnum og jafnvel umönnun fullorðinna foreldra, og er samtímis að mæta ýmsum kröfum í vinnunni, getur reynst afar krefjandi að halda boltum á lofti. Þessi tvíþætta pressa tæmir orkuna smám saman.

Slíkt álag hefur einnig áhrif á skapið og þolinmæðina, sem getur endurspeglast í samskiptum við samstarfsfólk og yfirmenn. Viðbrögð við venjulegum aðstæðum verða sterkari, viðkomandi forðast að takast á við verkefni, á erfitt með að taka gagnrýni og setja mörk. Þetta smitast út í starfsandann og dregur úr samvinnu og vellíðan á vinnustaðnum. Neikvætt andrúmsloft getur haft áhrif á nánasta samstarfsfólk, alla deildina, teymið eða jafnvel vinnustaðinn í heild.

Þegar streita og svefntruflanir vegna fjölskylduvanda eru viðvarandi, eykst líkamleg vanlíðan. Þreyta, höfuðverkir og meltingarvandamál eru algeng einkenni – og geta leitt til aukinnar fjarveru, mæta seint og óstöðugrar viðveru í vinnu. Ef starfsmaður er ekki í andlegu jafnvægi og skortir úthald eða orku til að sinna vinnu sinni, getur það haft áhrif á þjónustustig og ímynd eða afkomu fyrirtækisins – bæði beint og óbeint.

Álag og áhyggjur frá heimilinu bitna einnig á hugrænni getu. Einbeiting skerðist, sköpunargleði minnkar og ákvarðanataka verður óskýrari. Einstaklingurinn getur verið líkamlega til staðar, en andlega fjarverandi.

Gott er að eiga samræður með fagfólki sem styður við lausn vandamála og bætir samskipti innan fjölskyldunnar. Handleiðsla með öðrum í svipaðri stöðu getur einnig veitt bæði skilning og hvatningu. Að fá aðstoð við að vinna með eigin tilfinningar og hegðun getur skipt sköpum, sérstaklega þegar álagið er mikið.

 

Fjölskylduráðgjöf eða einstaklingsmeðferð getur létt álagið og hjálpað til við að þróa lausnamiðaða hugsun og öðlast nýja sýn á stöðuna.

bottom of page